Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Þetta skýrir málin ekki mikið einfaldlega vegna þess að ef hv. þm. vill ná samstöðu stjórnarandstöðunnar um meginlínur þá verður hann auðvitað að svara því hverjar tillögur þeirra eru. Við getum ekki náð saman um meginlínur ef okkur er ekki ljóst hvað við meinum. Það er eðlilegt að kallað sé eftir tillögum til þess að menn átti sig á hvort um samstöðu geti verið að ræða. Menn geta náð samstöðu um háleit markmið og í sumum efnum er allur þingheimur sammála um háleit markmið. En síðan kemur að leiðunum. Þess vegna er kallað eftir svörum. Við þurfum að vita hver svörin eru til að geta áttað okkur á því hvort um samleið geti verið að ræða. Fyrr er ekki hægt að svara slíkum spurningum.