Uppsagnir eða mismunun í starfi vegna aldurs

Fimmtudaginn 27. apríl 2000, kl. 23:31:29 (6807)

2000-04-27 23:31:29# 125. lþ. 103.41 fundur 538. mál: #A uppsagnir eða mismunun í starfi vegna aldurs# þál., Flm. ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 125. lþ.

[23:31]

Flm. (Ögmundur Jónasson):

Herra forseti. Ég kem fyrst og fremst upp til að fagna þeim góðu undirtektum sem þessi þáltill. fær frá þingmanni Sjálfstfl., hv. þm. Drífu Hjartardóttur. Ég tel að baki tillögunnar mætti mynda breiða pólitíska samstöðu. Þetta er ekki þröngt mál í þeim skilningi en þetta er brýnt hagsmunamál og félagslegt réttlætismál að það nái fram að ganga.