Staðfesting ýmissa ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar

Fimmtudaginn 04. maí 2000, kl. 14:48:24 (6900)

2000-05-04 14:48:24# 125. lþ. 106.6 fundur 587. mál: #A staðfesting ýmissa ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar# þál. 12/125, MF (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 125. lþ.

[14:48]

Margrét Frímannsdóttir (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á að þingmenn Sunnlendinga eiga að vera klukkan fjögur á fundi með Vegagerð vegna þess að verið er að ljúka vegáætlun. Ég geri svo sem ekki athugasemd við að málinu sé haldið áfram meðan á þeim fundi stendur, en óska eindregið eftir að leitað verði svara við þeim spurningum sem ég lagði fram.