Atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða

Fimmtudaginn 04. maí 2000, kl. 21:09:48 (6937)

2000-05-04 21:09:48# 125. lþ. 106.11 fundur 618. mál: #A atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða# frv., 619. mál: #A atvinnuréttindi skipstjórnarmanna# frv., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 125. lþ.

[21:09]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ég vil benda hæstv. ráðherra á að í brtt. samgn. við frv. sem tekur til flutningaskipanna, farþegaskipanna og skemmtibátanna, er einnig búið að breyta þessari viðmiðun úr 50 í 75. Það kemur fram á bls. 2 að í stað 50 í fyrri málslið 2. mgr. komi 75. Með því frv. sem við ræddum fyrr í dag og þessum tveimur er því verið að breyta þessu beggja megin.