Aukatekjur ríkissjóðs

Mánudaginn 08. maí 2000, kl. 16:11:27 (7021)

2000-05-08 16:11:27# 125. lþ. 108.3 fundur 258. mál: #A aukatekjur ríkissjóðs# (gjaldtökuheimildir o.fl.) frv. 55/2000, Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 125. lþ.

[16:11]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Brtt. sú sem ég flyt við frv. til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs er eingöngu tæknilegs eðlis. Hún er lögð fram með hliðsjón af breytingum sem eru til umfjöllunar í öðrum lögum í þinginu og munu koma frá hv. samgn.