Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Mánudaginn 08. maí 2000, kl. 22:09:41 (7105)

2000-05-08 22:09:41# 125. lþ. 108.35 fundur 231. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (fasteignagjöld) frv. 92/2000, Frsm. KHG
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 125. lþ.

[22:09]

Frsm. sjútvn. (Kristinn H. Gunnarsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft til athugunar 231. mál á þskj. 278, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum, sem hv. þm. Einar K. Guðfinnsson og Einar Oddur Kristjánsson flytja.

Nefndin hefur fengið sendar umsagnir frá Ísafjarðarbæ, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, fjmrn., Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Byggðastofnun, sjávarútvegsráðuneyti, Eyþingi -- Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og Vesturbyggð.

Í frv. er lagt til að undanþága Þróunarsjóðs sjávarútvegsins frá fasteignagjöldum verði afnumin.

Þegar undanþágureglan var lögfest var gert ráð fyrir að eignarhald Þróunarsjóðs væri ávallt til skamms tíma. Voru rökin fyrir undanþágunni þau að þar sem engin starfsemi færi fram í fasteignunum á meðan þær væru í eigu sjóðsins væri eðlilegt að þær nytu undanþágu frá fasteignagjöldum.

Um nokkurra ára skeið hefur Þróunarsjóður sjávarútvegsins átt húsnæði á tveimur stöðum á landinu, á Patreksfirði og Ísafirði. Vegna undanþágu fyrri málsliðar 16. gr. laganna hefur sjóðurinn ekki þurft að greiða fasteignagjöld til viðkomandi sveitarfélaga frá því að hann eignaðist húsin. Telja verður óeðlilegt og ekki í samræmi við upphaflegan tilgang fyrri málsliðar 16. gr. laganna að Þróunarsjóður geti átt fasteignir um langt skeið án þess að greiða af þeim lögboðin gjöld til viðkomandi sveitarfélaga.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.

Vilhjálmur Egilsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nál. rita Kristinn H. Gunnarsson, Einar Oddur Kristjánsson, Hjálmar Árnason, Drífa Hjartardóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Jóhann Ársælsson, Svanfríður Jónasdóttir og Guðjón A. Kristjánsson.