Eignarréttur íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 14:29:20 (7201)

2000-05-09 14:29:20# 125. lþ. 109.8 fundur 524. mál: #A eignarréttur íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins# (gjaldtökuheimild o.fl.) frv. 101/2000, ÁRJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 125. lþ.

[14:29]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Þingflokkur Samfylkingarinnar mun sitja hjá í þessu máli við 2. umr. Við jafnaðarmenn í iðnn. erum með brtt. við 3. umr. um að fyrir auðlindir á hafsbotni, ekki aðeins ólífrænar heldur einnig lífrænar, beri að greiða auðlindagjald auk þess að útboð skuli fara fram um hver skuli hljóta aðgang að þeim auðlindum.