Stofnun hlutafélags um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 14:52:17 (7205)

2000-05-09 14:52:17# 125. lþ. 109.25 fundur 530. mál: #A stofnun hlutafélags um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum# frv. 98/2000, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 125. lþ.

[14:52]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um frv. sem ég lýsti mjög eindreginni andstöðu við þegar það kom fyrst til umræðu í þinginu. Um er að ræða að gera Samábyrgð Íslands á fiskiskipum að hlutafélagi með það fyrir augum að koma því í sölu. Frv. var mjög gallað þegar það kom fram í þinginu en í meðförum efh.- og viðskn. hefur náðst málamiðlun sem ég tel svo mjög til bóta að ég styð þetta frv.