Stjórn fiskveiða

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 15:07:31 (7208)

2000-05-09 15:07:31# 125. lþ. 109.32 fundur 460. mál: #A stjórn fiskveiða# (gildistími ákvæða um veiðar smábáta) frv. 93/2000, GAK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 125. lþ.

[15:07]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Þær brtt. sem við lögðum til hafa allar verið felldar og það jafnræði sem ég hefði talið að þyrfti að vera með mönnum við afgreiðslu málsins er ekki til staðar. Þess vegna greiði ég málinu ekki atkvæði.