Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Eins og fram kom í máli hv. síðasta ræðumanns, Margrétar Frímannsdóttur, var tillaga sú sem hér er til umfjöllunar flutt af þingflokki Samfylkingarinnar á haustdögum í samhengi við önnur mál sem höfðu það öll að markmiði að sporna gegn fákeppni og óeðlilegri valdasamþjöppun í samfélaginu.
Tillagan byggir m.a. á tilmælum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um viðskipti með framseljanleg verðbréf, en samkvæmt þeim eru aðildarríkin hvött til að setja sér siðareglur á fjármagnsmörkuðum til að koma á snurðulausri framkvæmd starfsemi markaða og til að efla virk tengsl þeirra á milli.
Nokkuð hafa verið til umræðu í samfélaginu mál sem einmitt snerta það svið sem hér er verið að ræða um og tillagan snýr í raun að. Við þekkjum umræðuna um innherjaviðskipti og hvaða áhrif það getur haft á fjármagnsmarkaðnum þegar slíkt vantraust getur komið upp á milli viðskiptavina og milli þeirra sem eru að höndla með verðbréf. Við bentum á það í okkar tillögu að íslenskur verðbréfamarkaður er ungur og í stöðugri mótun og til þess að hann megi þróast eðlilega allri þjóðinni til hagsbóta er nauðsynlegt að hlúa að heilbrigðum og gagnsæjum viðskiptaháttum á öllum fjármagnsmarkaðnum. Þessi tillaga var hugsuð sem viðleitni í þá veru.
Það hefur verið að gerast í löndunum í kringum okkur að fyrirtæki setja sér í æ ríkari mæli slíkar siðareglur. Það má segja að sú þróun hafi hafist í Bandaríkjunum og hið sama hefur verið að gerast í Evrópu. En einhverra hluta vegna hefur þessi þróun ekki skilað sér til Íslands í sama mæli. Að minnsta kosti virðist skorta á að bankar, sparisjóðir og aðrar fjármálastofnanir setji almennar siðareglur sem gildi í öllum viðskiptum á fjármagnsmarkaðnum.
Eins og fram kom í máli frsm. hv. efh.- og viðskn. áðan taldi nefndin ekki eðlilegt að viðskrh. hefði bein afskipti af því að fyrirtæki setji sér siðareglur eins og tillögugreinin gerir ráð fyrir. En ég vil þrátt fyrir það lýsa yfir ánægju minni með niðurstöðuna. Ég tel að nefndin hafi fallist á það meginatriði málsins að þetta verði skoðað og að stjórnvöld taki á þann hátt þátt í þessari umræðu um viðskiptasiðferði og geti kannski stuðlað að því að hún skili sér inn í fyrirtækin á komandi mánuðum. Ég vil því lýsa yfir ánægju minni með að hv. efh.- og viðskn. hafi afgreitt þetta mál á þennan hátt. Ég tel lendinguna góða og hvet að sjálfsögðu til þess að hún verði studd.