Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Samkvæmt 12. gr. frv. er heimilað að fela skoðunarstofum svokölluðum eldvarnaeftirlit á landsbyggðinni. Við umræðu hér í gær eða í nótt beindi ég því til ráðherra og formanns umhvn. hvað átt væri við með þessu. Það kom fram í skýringu hv. formanni umhvn. að hér væri ekki um stefnumótun að ræða heldur væri þetta sett inn til þess að mæta algerum undantekningartilvikum. Í trausti þess að þetta sé rétt skýring og að við hana verði staðið í framtíðinni þá styð ég þessa grein sem aðrar í frv.