Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég fagna því að þetta mál er tekið hér upp og ég vil eins og fleiri þingmenn nota tækifærið til að hvetja hæstv. umhvrh. eindregið til að fara yfir stöðu þessara mála. Ég tel að síðustu framkvæmdir og áfangar Kvíslaveitna orki mjög tvímælis og sú fyrirhugaða útfærsla þess sem fram undan er miðað við samkomulagið frá 1981. Enginn vafi er á því að ef nú ætti að ráðast í framkvæmdir af þessu tagi yrði þarna að sjálfsögðu lögformlegt umhverfismat og þær framkvæmdir yrðu settar undir miklu strangari skorður en þarna hafa verið gerðar. Það er t.d. ótrúlegur hlutur en satt engu að síður að þarna hafa átt sér stað vatnaflutningar milli vatnasvæða, jafnvel milli landshluta, þannig að vatn sem áður rann norður til sjávar norðan lands, fellur nú suður yfir heiðar án þess að nánast hafi verið um þetta talað. Þessa hluti og fleiri sem þarna hafa verið að gerast eða eru fram undan þarf að fara yfir og ég held að hæstv. ráðherra verði að einhenda sér í það á næstunni að fara yfir þetta mál með framkvæmdaraðilum og reyna að ná skynsamlegum sáttum.