Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Ég er ekki sammála því sem hér kom fram að þetta væri mál sem sé hvorki með haus né hala. Það er alveg ljóst að Alþingi var með ákveðna stefnu í málinu, það felldi tillöguna. Hin endanlega afgreiðsla var sú að tillagan var felld. Hún náði ekki fram að ganga þannig að svar mitt við fsp. er nei.
Hér fór hv. þm. Halldór Blöndal í tæknilega nálgun á þessu máli varðandi þingsköpin og ég deili því viðhorfi að hér er um svolítið ankannalega leið að ræða. Það var sérstaklega athyglisvert að upplifa þá atkvæðagreiðslu sem fór fram um málið að hér samþykktu þingmenn tillgr., síðan hlupu tveir þingmenn út, mig minnir að það hafi verið hæstv. fjmrh. Geir Haarde og hv. þm. Drífa Hjartardóttir. Einhverjir skiptu um skoðun og inn kom þingmaður sem var mótfallinn málinu, en hæstv. fjmrh. og hv. þm. Drífa Hjartardóttir voru því fylgjandi. Síðan kemur hv. þm. Árni Johnsen og er mótfallinn málinu. Hér átti sér því stað sérstök uppákoma þar sem málið var fyrst samþykkt, en síðan í heild kom vilji þingsins fram að lokum þannig að málið var fellt. Svar mitt er því nei vegna þess að málið var fellt.
Varðandi þau ummæli sem hv. þm. Halldór Blöndal kom með og var að hnýta í það að sú sem hér stendur teldi að almenningur þekkti lítið til veðurheitanna og dró þar sérstaklega fram að öllum landsmönnum hefði verið hægt um vik að fylgjast með veðurheitum þá er það alveg ljóst að í nýlegri könnun sem gerð var hjá Gallup vissi 80% aðspurðra ekki eða svaraði rangt til um hvað orðið stinningskaldi þýðir. Því er alveg ljóst að menn hafa því miður litla tilfinningu fyrir þessu. Menn hafa og munu hafa í framtíðinni miklu meiri tilfinningu fyrir metrum á sekúndu. Við getum tekið bara sem dæmi hitastig, gráður á Celsíus. Menn hafa vanist því og núna þarf maður ekkert að tala um volgt, vel heitt o.s.frv. þannig að þetta er alveg sambærilegt mál. Almenningur þekkir ekki hvað veðurheitin þýða þannig að svar mitt er nei en það byggist aðallega á því að tillagan var felld á hv. Alþingi.