Fyrirspurnir til dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra

Miðvikudaginn 10. maí 2000, kl. 14:20:26 (7433)

2000-05-10 14:20:26# 125. lþ. 114.95 fundur 525#B fyrirspurnir til dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra# (um fundarstjórn), MF (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 125. lþ.

[14:20]

Margrét Frímannsdóttir:

Virðulegi forseti. Af því að það kom til umræðu í morgun þar sem einn hæstv. ráðherra hefur kosið að svara ekki spurningum, þá vildi ég aðeins nota þetta tækifæri og hef ekki annað form á til að þakka hæstv. félmrh. og hæstv. dómsmrh. fyrir hversu vel hefur verið brugðist við öllum þeim fyrirspurnum sem ég hef lagt fram um unga afbrotamenn.