Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka ágætar ábendingar sem komu fram hjá fyrirspyrjanda. Eins og kom fram í fyrri ræðu minni er þetta í mikilli endurskoðun og þetta er í mikilli deiglu. Ýmsar framfarir eru þarna í gangi og það sem hér hefur komið fram bætist í þann pakka sem verið er að vinna úr.