Þuríður Backman (andsvar):
Herra forseti. Varðandi þau orðaskipti sem hafa farið fram vil ég að komi fram að í hv. heilbr.- og trn. ræddum við ekki út um þessi mál. Innan nefndarinnar kom upp hugsanlegur flutningur en við ræddum þetta ekkert málefnalega og tókum ekki afstöðu til málsins innan nefndarinnar. Ég ætla að vona að það sé öllum ljóst að við í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði erum fylgjandi því að nýjum stofnunum sé fundinn staður úti á landsbyggðinni, að nýjum verkefnum sem eru innan ríkisstofnananna sé fundinn staður utan höfuðborgarsvæðisins og að hver einasta ríkisstofnun sé skoðuð með tilliti til þess hvaða verkefni og störf geta farið út á land.
Í þessu tilfelli er í raun og veru ekki um nýja stofnun að ræða nema að nafninu til. Verið er að sameina tvö rótgróin fyrirtæki eða stofnanir í eina með alla starfsemi sína á höfuðborgarsvæðinu og farið hefur verið yfir það hvaða tenging þetta er varðandi þá starfsmenn sem koma að lyfjaeftirlitinu og lyfjanefndinni. Ég er ekki viss um að heppilegt sé að taka þessa nýju stofnun, sem er ný á pappírunum, upp með rótum og flytja hana alfarið út á land. Það yrði þá að skoða það mjög gaumgæfilega og taka tillit til þeirrar starfsemi sem þarna fer fram en vissulega á að skoða það núna strax í upphafi hvað af starfsemi þessarar stofnunar gæti verið utan höfuðborgarsvæðisins þó svo að móðurstöðin væri hér.