Stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Föstudaginn 12. maí 2000, kl. 12:56:39 (7556)

2000-05-12 12:56:39# 125. lþ. 117.5 fundur 502. mál: #A stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar# frv. 76/2000, Frsm. 2. minni hluta MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur, 125. lþ.

[12:56]

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Margrét Frímannsdóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé ekki alveg rétt hjá hv. þm., hann nefndi hvort tveggja hér, við skulum halda því til haga, að nauðsyn væri á að fulltrúi samgrn. kæmi að þessu en einnig væri nauðsynlegt að starfsmenn ættu sæti í stjórn og um það erum við sammála.