Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Steingrímur J. Sigfússon) (andsvar):
Herra forseti. Ég fullyrði að ferðaþjónustuaðilar í landinu hafi verið þeirrar skoðunar fram á þennan dag, það kann þá að breytast núna eftir þessi svör utanrrh., að allur viðbótarkostnaður, bæði stofnkostnaður og rekstrarkostnaður vegna Schengen-aðildar yrði greiddur úr ríkissjóði sérstaklega. Þannig hefur bréf utanrrh. frá 1996 til Flugleiða dags. 9. maí 1996 verið túlkað. Í umsögn Flugleiða til utanrmn. út af Schengen orða þeir þetta þannig. Í umsögninni var m.a. vitnað til bréfs sem utanrrh. sendi Flugleiðum 9. maí 1996, þar sem staðfest var að: ,,Ríkissjóður mundi greiða stofnkostnað og rekstrarkostnað er leiðir af Schengen-samstarfinu.``
Þetta er orðað svona. Hvernig getur þetta gerst öðruvísi en þarna komi fjármunir úr ríkissjóði til að mæta þeim viðbótarkostnaði? Annars lendir hann á notendunum. Það er algerlega morgunljóst. Ef flugstöðin á ein að slá lán fyrir þessum mikla framkvæmdarkostnaði, þar á meðal um kannski 700--900 millj. kr. í núverandi áfanga vegna Schengen, hvernig á hún að borga það? Af sínum almennu tekjustofnum sem eru notendagjöld. Þetta er því alveg morgunljóst, herra forseti. Hér er verið að efna í hreinar vanefndir á þessari yfirlýsingu og það er mjög alvarlegt mál.