Fullgilding samnings um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn

Föstudaginn 12. maí 2000, kl. 15:06:38 (7585)

2000-05-12 15:06:38# 125. lþ. 117.14 fundur 585. mál: #A fullgilding samnings um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn# þál. 22/125, Frsm. JónK
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur, 125. lþ.

[15:06]

Frsm. utanrmn. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. utanrmn. um tillögu um fullgildingu samnings um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hjálmar W. Hannesson, skrifstofustjóra í utanríkisráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á samningi um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn sem samþykktur var í New York 10. september 1996.

Samningurinn gerir ráð fyrir alþjóðlegu eftirlitskerfi 321 stöðvar í 89 löndum víðs vegar um heiminn. Kerfið er tvískipt, aðalkerfi og varakerfi, og verða tvær framangreindra stöðva á Íslandi til mælinga á geislavirkni og jarðhræringum. Stöð til mælinga á geislavirkni sem tilheyrir aðalkerfinu verður á Rjúpnahæð en stöð til jarðskjálftamælinga, sem Veðurstofa Íslands mun hafa umsjón með, í nágrenni við Borgarnes og er henni ætlað að þjóna varakerfinu.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nál. rita Tómas Ingi Olrich, Jón Kristjánsson, Árni Ragnar Árnason, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Jónína Bjartmarz, Steingrímur J. Sigfússon, Sighvatur Björgvinsson og Jóhann Ársælsson.