Stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Laugardaginn 13. maí 2000, kl. 09:03:20 (7695)

2000-05-13 09:03:20# 125. lþ. 118.1 fundur 502. mál: #A stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar# frv. 76/2000, SJS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 125. lþ.

[09:03]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Helstu ástæður þessarar frávísunartillögu af okkar hálfu eru þær að þetta mál er engan veginn nógu vel undirbúið. Á þessu frv. eru mjög alvarlegir ágallar sem lúta m.a. að samkeppnislögum og samhengi þessa máls við þau. Í þriðja lagi erum við algerlega andvíg öllu einkavæðingarbrölti hvað varðar þetta mikilvæga samgöngumannvirki að svo miklu leyti sem slíkt kann að leynast þarna á bak við þessa breytingu rekstrarins í Keflavík yfir í hlutafélag. Við teljum því heppilegast að vísa þessu máli til ríkisstjórnarinnar og láta hana vinna heimavinnuna sína.