Kolbrún Halldórsdóttir:
Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um það hversu lengi leyfi til framkvæmda telst vera í gildi og í brtt. frá meiri hlutanum og reyndar í frv. sjálfu er gert ráð fyrir að það hafi tíu ára líftíma án þess að framkvæmdir þurfi að hefjast. Tíu ár í umhverfismálum eru afskaplega langur tími, herra forseti, og ég hefði svo sannarlega vonað að brtt. frá minni hluta umhvn. næði fram að ganga sem kveður á um fimm ára líftíma framkvæmdaleyfis áður en framkvæmdir hefjast. Í umhverfismálum eru tíu ár langur tími og á þeim tíma getur margt gerst og sjónarmið fólks breyst. Ég segi nei.