Jóhanna Sigurðardóttir (um fundarstjórn):
Herra forseti. Eins og hér hefur komið fram liggur fyrir að efh.- og viðskn. gat ekki lokið störfum sínum. Hún verður kölluð saman til fundar nú um kvöldmatarleytið. Við vitum út af fyrir sig ekki hve langur sá fundur getur orðið. Takist að ljúka málinu þarf, eins og fram hefur komið, okkur fulltrúum í efh.- og viðskn. að gefast tími til að ganga frá því þannig að málið sé tækt til 2. umr., m.a. með nefndarálitum. Ég hlýt að fara fram á, ef fram heldur sem horfir að hér eigi að vera kvöldfundur, að hlé verði gert á fundum og störfum þingsins meðan efh.- og viðskn. starfar og meðan við erum að ganga frá hugsanlegum nál. í þessu máli.
Ég trúi því ekki, eins og tveir síðustu ræðumenn hafa sagt, að hér eigi að halda kvöldfund þegar vitað er að efh.- og viðskn. getur ekki lokið vinnu sinni. Ég held að það hljóti að vera tímabært að forseti endurskoði hvort hér eigi virkilega að halda fram störfum á þessum degi og í kvöld einnig þegar sýnt er að við munum ekki geta lokið störfum í efh.- og viðskn. fyrr en síðla kvölds. Á þá virkilega að taka þetta umdeilda mál sem við höfum verið að ræða, um afnám á skattfrelsi forsetans, fyrir í skjóli nætur? Ég trúi því ekki.
(Forseti (HBl): Hv. þm. hefur langa reynslu af því bæði sem þingmaður og ráðherra að stundum eru tekin fyrir umdeild frv. á Alþingi bæði í skjóli dags og nætur.)