Framhald þingfundar

Laugardaginn 13. maí 2000, kl. 15:53:14 (7767)

2000-05-13 15:53:14# 125. lþ. 118.97 fundur 552#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 125. lþ.

[15:53]

Ögmundur Jónasson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil taka undir það sjónarmið hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur, formanns þingflokks Samfylkingarinnar, að eðlilegt er að formenn þingflokka komi saman til fundar með hæstv. forseta Alþingis til að ræða þinghaldið. Af okkar hálfu væri ekkert við það athuga að gera það meðan á umræðu um vegáætlun stæði.