Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. kvartar undan því að lítið sé um svör. Ég tel mig hafa gefið alveg fullnægjandi skýringar á því hvers vegna lítið er um svör. Skýringarnar liggja í því að undirbúningur að framkvæmdum við Sundabraut er ekki lengra á veg kominn en raun ber vitni. Ég vil því endurtaka það sem ég sagði áðan að vanda þarf mjög umhverfismat við slíka framkvæmd og það tekur langan tíma. Líka þarf að liggja ljóst fyrir hvernig skipulagi er háttað. Það liggur ekki fyrir af hálfu borgaryfirvalda. Það er mjög flókið hvernig þessi mikla umferðaræð á að koma inn í þetta fullbyggða svæði í Vogunum. Ég er alveg viss um að mörgum íbúum mun bregða mjög við og raunar hefur ýmsum íbúum á þessu svæði, sem sjá fram á að fá miklar umferðaræðar mjög nærri eignum sínum, verið nokkuð brugðið. Þarna þarf að vanda sig og ég held að ekki sé skynsamlegt að flana að neinu í þeim efnum.
Hv. þm. undraðist það að stjórnarþingmenn skuli ekki hafa þrýst á um að Sundabrautin fengi fjárveitingar. Ég get sagt hv. þm. frá því að stjórnarþingmenn hafa rætt um framkvæmdir við Sundabraut við samgrh. en það hefur enginn stjórnarandstöðuþingmaður rætt við samgrh. um þessa framkvæmd. Það er því heldur undarlegt að vera að amast við því að hlutirnir gerist ekki en hafi svo ekki nokkra rænu á að hafa fyrir því að beina þeim spjótum til réttra aðila.