Frsm. samgn. (Árni Johnsen):
Herra forseti. Það er risavaxið verkefni að leggja vegi á Íslandi, ekki síst með tilliti til fámennis. Því er ekki að undra þótt hv. þm. leggi til hugmyndir úr öllum áttum fyrir framtíðina. Fyrir hönd samgn. þakka ég jákvæða umræðu og framtíðarsýnir sem flugu hér um sali. Það er sýnt að sumarið er komið og jafnvel hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon gladdist af öllu hjarta yfir því lítilræði sem þessi vegáætlun er, sem hér er lögð til, bæði með hefðbundnum framlögum og viðbótarframlögum. Það er vel. Það er líka nýtt að hv. þm. gleðjist svo innilega sem raun ber vitni hér í ræðustól. Það ber kannski vott um að menn stefni að sama marki. Markmiðið með þessari vegáætlun er að ná árangri. Vonandi horfum við öll björtum augum fram á veginn.