Framhaldsfundir Alþingis

Föstudaginn 30. júní 2000, kl. 13:31:55 (0)

2000-06-30 13:31:55# 125. lþ. 121.1 fundur 553#B framhaldsfundir Alþingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 121. fundur, 125. lþ.

[13:31]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda föstudaginn 30. júní 2000 kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 13. júní 2000.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismenn, svo og starfsmenn Alþingis býð ég velkomna til þingstarfa við þessi sérstaklega hátíðlegu tímamót í sögu þjóðarinnar.