Fjárlög 2000

Þriðjudaginn 05. október 1999, kl. 19:50:53 (90)

1999-10-05 19:50:53# 125. lþ. 3.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 125. lþ.

[19:50]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Út á þetta gengur þáltill. þingflokks Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs, að menn víki kennisetningum og kreddum til hliðar og setjist yfir staðreyndir málsins. Þetta hefur verið ósk okkar og krafa og ég vona að við berum gæfu til að ná samkomulagi um að hafa þennan hátt á.