Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Varðandi láglaunahópana þá er reyndin sú að staða þeirra hefur batnað allverulega á síðustu árum. Og hvað varðar bótaþegana þá kom líka fram í umræðunum í vor að staða þeirra hefur batnað allverulega. Það eru því ekki réttar fullyrðingar hjá hv. þm.
Það að fólk eigi skuldir en engar eignir, ég ætla bara að vona að ekkert voðalega margir séu í þeirri stöðu því það þýðir gjaldþrot. Það þýðir ekkert annað en gjaldþrot þegar menn eiga bara skuldir og engar eignir. Yfirleitt er það nú þannig með velflest fólk að það á eignir, sem betur fer. Og það stofnar ekki til skulda nema til þess að kaupa sér eignir. Annað væri ákaflega óráðlegt.
Varðandi ungt fólk sem er að kaupa, þá ætla ég ekki að líkja því saman hvað það er betra að kaupa íbúð í dag en áður með miklu hærri laun, þökk sé þessari ríkisstjórn, og ekkert atvinnuleysi. Ég ætla ekki að líkja því saman.