Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Hæstv. viðskrh. stóð upp til að vekja athygli á því að það tæki langan tíma að uppfæra skýrsluna og það væri kostnaðarsamt. Þetta eru engar nýjar staðreyndir. Ég flutti á síðasta þingi beiðni um skýrslu þar sem að gerð yrði úttekt á stjórnunar- og eignatengslum í ákveðnum atvinnugreinum. Einu svörin sem ég fékk frá hæstv. ráðherra eftir sex eða átta vikur var að þetta væri svo umfangsmikið, að þetta tæki svo langan tíma og þetta væri svo kostnaðarsamt að ekki væri hægt að svara þessu. Ég hefði því talið að miðað við hve brýnt er að ráðast í þetta verkefni að ráðuneytið hefði þá nýtt þann tíma frá því á síðasta ári til að fara í það verkefni en greinilega hefur ekkert verið gert þó það vakin hafi verið athygli á því fyrir ári að ráðast þyrfti í þetta verkefni. En ég vona að breyting verði á og við fáum að sjá uppfærslu á þessari skýrslu sem allra fyrst á Alþingi.