Mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar

Fimmtudaginn 07. október 1999, kl. 16:24:46 (241)

1999-10-07 16:24:46# 125. lþ. 5.12 fundur 7. mál: #A mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar# þál., SighB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 125. lþ.

[16:24]

Sighvatur Björgvinsson (andsvar):

Herra forseti. Nú bregður svo við að það sem ég skildi svo mætavel fyrir hálfri mínútu síðan skil ég alls ekki núna. En ég gerði ekkert annað, virðulegi forseti, en að vitna orðrétt í þingmann. Ég get ekki annað skilið á hv. þm., 5. þm. Austurl., sem talaði hér áðan, en að hún væri að lýsa svipuðum viðhorfum og komu fram hjá hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur, samkvæmt þeim orðum sem hún sagði.

En ég verð að viðurkenna það, virðulegi forseti, að nú botna ég hvorki upp eða niður.