Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ef það er þannig í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar að þar séu handjárnin sett á menn í þeim skilningi að ef ríkisstjórnin ákveði eitthvað þá jafngildi það því að fagráðherrar skuli lúta þeirri stefnu og bregðast skyldum sínum ef svo ber undir, þá eru það alveg nýir tímar í stjórnskipun lýðveldisins. Þetta snýst um hvort stjórnarstefnan, okið sem sett er á einstaka ráðherra, er þannig og valdboðið svo algert af hálfu stjórnarherranna, forsrh. og utanrrh., að umhvrh. sé nauðbeygður, viljugur eða óviljugur, til að bregðast skyldum sínum sem umhvrh. Um það snýst málið en við horfum hér upp á að sá bregst sem síst skyldi.
Við erum aðilar að samningnum um líffræðilegan fjölbreytileika og þar hafa menn undirgengist það að láta náttúruna njóta vafans. Það stendur þar í 1. eða 2. gr. Umhvrh. er m.a. að bregðast skyldum sínum í því tilliti ef stjórnarstefnan á að hafa völdin eins og hér er sagt.