Mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar

Fimmtudaginn 07. október 1999, kl. 17:25:29 (260)

1999-10-07 17:25:29# 125. lþ. 5.12 fundur 7. mál: #A mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar# þál., ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 125. lþ.

[17:25]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Eins og kom fram í máli mínu var ég því miður upptekin við önnur störf framan af þessari umræðu og þykir það miður. Hitt ætla ég að ítreka við hv. umhvn. að hún kynni sér byggðamál mjög vandlega.