Árni Steinar Jóhannsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. dómsmrh. fyrir greinargóða yfirferð á nýju frv. til laga um ættleiðingar. Í frv. er margt gott að finna og ekki ástæða til þess að gagnrýna margt af minni hálfu. Ég vil hins vegar nota tækifærið og taka undir málflutning hv. 17. þm. Reykv., Kolbrúnar Halldórsdóttur, varðandi 2. gr. ættleiðingarlaganna.
Það er mjög mikilvægt að samkynhneigðir í staðfestri sambúð hafi sömu mannréttindi og aðrir í þessu sambandi. Við leggjum á það megináherslu eins og fram kom hjá hv. þm. Engin rök eru fyrir því að mismuna samkynhneigðum á þann hátt sem gert er í 2. gr. laganna. Þvert á móti eru margar rannsóknir sem benda til þess að samkynhneigt fólk geti jafnvel verið betri foreldrar en gagnkynhneigt.
Við hlustuðum á merkan fyrirlestur uppi í Háskóla Íslands í fyrradag sem sýndi ótvírætt fram á slíkar niðurstöður þó að þær séu e.t.v. ekki marktækar að öllu leyti. Það veit maður ekki en niðurstöðurnar benda til þess.
Ég legg áherslu á að við munum leggja megináherslu á að þetta verði sett inn í I. kaflann um frv. til laga um ættleiðingar. Það er skemmri skírn að nota breytingu á 6. gr. laga um staðfesta sambúð. Það er ekki ásættanlegt að mínu mati að fara þá leið. Ég vil enn taka undir sjónarmið hv. 17. þm. Reykv. þegar hún segir að það sé engin ástæða fyrir okkur að fara í einu og öllu eftir formúlum Dana, hvernig þeir hafa kosið að tryggja þessi mannréttindi. Við getum farið þá leið sem okkur sýnist best. Það er ekki boðlegt á því herrans ári 1999, í upplýstu samfélagi, að við skulum ekki hafa manndóm í okkur til, og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því, að tryggja þessum minnihlutahópi sömu réttindi og öllum öðrum þannig að fólk í staðfestri samvist, samkynhneigt fólk, geti á nýrri öld búið við sömu réttindi og allir aðrir í samfélaginu.
Ég vil árétta að við í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði munum fylgja málum eftir á þennan hátt. Við teljum mjög mikilvægt að þetta fari inn í frv. til laga um ættleiðingar og það sé síðri kostur, þó að hann sé fær, að breyta 6. gr. laga um staðfesta samvist. Við viljum full mannréttindi og treystum því að í meðferð nefndar verði slíku komið á.