Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég er viss um að ég get verið sammála hv. þm. Guðmundi Árna Stefánssyni um ýmsa hluti en ég er ekki sammála honum um þetta. Ég hef margítrekað lýst þeirri skoðun minni að ég tel að þessi breyting eigi heima í lögum um staðfesta samvist ef menn vilja gera þá breytingu. Sú leið var valin í Danmörku og ég tel að það sé bæði rétt og skynsamlegt. Það breytir því ekki að ég vil nota tækifærið og ítreka og biðja hv. þingmenn um að reyna að sjá til þess að þetta mál tefji í sjálfu sér ekki framgang frv. í heild sinni um ættleiðingar því að mjög margir bíða eftir að þetta frv. verði að lögum.