Framlagning frv. til lokafjárlaga

Fimmtudaginn 14. október 1999, kl. 10:36:26 (515)

1999-10-14 10:36:26# 125. lþ. 9.91 fundur 68#B framlagning frv. til lokafjárlaga# (aths. um störf þingsins), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 125. lþ.

[10:36]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur, þingflokksformanni Samfylkingar, og lýsa því yfir að ég tel þetta góð vinnubrögð af hálfu hæstv. fjmrh., að gera þinginu grein fyrir fyrirsjáanlegri töf á framlagningu frv. Ég styð eindregið að þetta mál verði tekið til umfjöllunar á fundi hæstv. forseta með þingflokksformönnum.