Framlagning frv. til lokafjárlaga

Fimmtudaginn 14. október 1999, kl. 10:39:05 (517)

1999-10-14 10:39:05# 125. lþ. 9.91 fundur 68#B framlagning frv. til lokafjárlaga# (aths. um störf þingsins), HBl
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 125. lþ.

[10:39]

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Mér finnst sjálfsagt að þetta mál verði tekið fyrir á fundi forseta með þingflokksformönnum eins og hvað eina annað sem þingflokksformenn óska eftir að þar sé tekið til umræðu og athugunar.

Ég vil jafnframt láta í ljósi þakklæti til hæstv. fjmrh. fyrir góð vinnubrögð hans og hreinskilni í þessu máli.