Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Enginn er að ætlast til þess að allt sem stendur skrifað í stjórnarsáttmálanum komist til framkvæmda á fyrstu mánuðum kjörtímabilsins. Það sem við erum að kalla eftir og spyrja um er forgangur ríkisstjórninnar, hvort eigi að vera í forgang að bæta stöðu barnafólks sérstaklega eða fara þá leið sem hæstv. ráðherra hefur mælt fyrir.
Það sem er athyglisvert og hefur komið fram í máli hæstv. ráðherra og hann hefur reyndar staðfest að ekki er samkomulag á milli Framsfl. og Sjálfstfl. um að komið verði á barnakortum upp á 30 þús. kr. eins og Framsfl. lofaði. Ég man ekki betur en hæstv. viðskrh. hafi aðspurður í sjónvarpi staðfest það þegar fréttamaður spurði hann hvort treysta mætti því að á kæmi barnakort og hann hafi svarað því játandi. Nú liggur það fyrir að ekki er samkomulag milli stjórnarflokkanna um að barnakortum verði sérstaklega komið á heldur vísar hæstv. ráðherra í stjórnarsáttmálann þar sem segir: t.d. með útgáfu barnakorta og öðrum sambærilegum aðgerðum. Þá er það ljóst og er út af fyrir sig ágætt að hafa það staðfest þó að það sé slæmt fyrir fólk sem hefur beðið eftir þessu og talið víst að komið væri á samkomulag milli stjórnarflokkanna um barnakort, það væri bara tímaspursmál, að ekki liggur fyrir neitt samkomulag milli stjórnarflokkanna um að hér verði komið á barnakorti á kjörtímabilinu eins og Framsfl. lofaði.
Að öðru leyti þætti mér vænt um ef hæstv. ráðherra hefði tök á að svara þeim spurningum sem ég beindi til hans um ónýttan persónuafslátt barna.