Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Varðandi fjárlagaþáttinn í þessum breytingum þá var ekki hægt að hafa þetta öðruvísi en að ganga í fjárlagatillögunum út frá þeirri lagaforsendu sem við búum enn þá við. Ég fullyrði hins vegar að fjárhagslegur grundvöllur þessa málaflokks verður ekki veikari eftir tilflutninginn en áður.