Breyting á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins

Miðvikudaginn 20. október 1999, kl. 13:44:48 (739)

1999-10-20 13:44:48# 125. lþ. 13.2 fundur 54. mál: #A breyting á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins# fsp. (til munnl.) frá forsrh., forsrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 13. fundur, 125. lþ.

[13:44]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Orð mín um þann vanda að finna umhvrn. verkefni á sínum tíma á ekki að skilja svo að verkefnaþurrð hafi verið í þjóðfélaginu gagnvart því ráðuneyti. Hins vegar var til ráðuneytisins stofnað og þá voru verkefnin eðli málsins samkvæmt, fyrir stofnun þess, hjá öðrum ráðuneytum og þurfti þá að taka þau af öðrum ráðuneytum sem höfðu sinnt þeim kannski bærilega vel fram að því. Það var út af fyrir sig ekkert undarlegt að það hefði nokkurn aðdraganda og nokkra erfiðleika í för með sér.