Fyrirspyrjandi (Einar K. Guðfinnsson):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir greinargóð svör og hv. þingmönnum fyrir góðar viðtökur við fyrirspurninni. Ég held að áhuginn sem komið hefur fram í umræðunni undirstriki að þetta er mál sem mörgum er kunnugt um að þurfi að bæta úr. Og ég verð að segja það eins og er að mér finnst það bara alls ekki frambærileg frammistaða af hálfu Ríkisútvarpsins að sú staða sé uppi að 78 bæir njóti ekki svo sjálfsagðra mannréttinda og þeirra að geta séð sjónvarpsútsendingar frá Ríkisútvarpinu.
Menn verða auðvitað að hafa það í huga að Ríkisútvarpið hefur mikla sérstöðu. Ríkisútvarpið nýtur þeirrar sérstöðu að hafa lögverndaðar heimildir til skylduaðildar og skylduáskriftar að sjónvarpinu og útvarpinu og getur auðvitað þannig í krafti þess byggt sig upp með allt öðrum hætti en einkafyrirtæki sem eru að berjast um á þessum markaði. Ég held að þetta sé fyrst og fremst spurning um þá forgangsröðun sem ríkir innan stofnunarinnar og deila má auðvitað um það hvort menn ætla að leggja mikla peninga í dagskrárgerð eða einhverja aðra hluti, textavarp eða nýja sjónvarpsrás eða eitthvað slíkt, en aðalatriðið finnst mér vera að þetta stóra fyrirtæki sem veltir gífurlega miklum upphæðum á að sjá sóma sinn í því og hefur miklar skyldur í þeim efnum að sinna öllum landsmönnum, m.a. þeim íbúum sem búa á þessum 78 bæjum.
Ég vek líka athygli á því að í þriðju spurningunni spurði ég um hvort hæstv. ráðherra væri kunnugt um að tilvik væru til um að einstökum notendum sjónvarpsins væri gert að leggja fram peninga til að endurnýja búnað sem komið hefur verið upp til að menn gætu notið sjónvarpsútsendinga. Það kemur á daginn að það eru 20 tilvik um að fólk hefur sjálft verið látið taka þátt í þeim kostnaði að endurnýja og halda við slíkum búnaði. Þetta er auðvitað alveg fráleitt. Það mundi engum detta í hug, t.d. ef gata í Reykjavík yrði allt í einu án símasambands, að íbúarnir í götunni yrðu látnir borga, taka þátt í að borga til að mynda símalínurnar. Það dettur auðvitað engum í hug. Þetta er því alveg fráleitt.
Ég hef það einnig í huga að þeir íbúar sem á þessum bæjum búa eru yfirleitt sveitafólk þar sem liggur fyrir að tekjurnar eru lægstar þannig að við erum með þessu móti að skattleggja okkar minnstu bræður.