Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Miðvikudaginn 20. október 1999, kl. 16:00:52 (796)

1999-10-20 16:00:52# 125. lþ. 14.1 fundur 3. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# (gjöld af bensíni) frv. 86/1999, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 14. fundur, 125. lþ.

[16:00]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Tillagan sem hér eru greidd atkvæði um er í samræmi við athugasemdir og umsagnir frá Neytendasamtökunum, ASÍ og Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Bæði er hér um eðlilegri viðmiðun að ræða í hinni föstu krónutölu af vörugjaldi og auk þess sem tillagan tryggir að bifreiðaeigendur njóti þess þegar lækkun verður á heimsmarkaðsverði á bensíni. Ég segi já.