Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Þótt sú leið sem að ríkisstjórnin hefur valið og birtist í 1. gr. frv. sem við greiðum hér atkvæði um orki tvímælis, bæði að því er varðar aðferðina sem valin er og þá krónutölu er vörugjald af bensíni er bundið við, þá er frv. skref í átt til að lækka bensínverðið þó tímabundið sé. Ég segi já.