Guðmundur Árni Stefánsson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég spurðist fyrir um það áðan á forsetaborði hvernig því viki við að hæstv. viðskrh. væri ekki viðstaddur þessa umræðu og forseti upplýsti að hans væri von.
Ég vek einnig athygli á því að hér er um að ræða mál, 2. mál á dagskrá, raunar 3. og 4. sömuleiðis, sem er á málasviði efh.- og viðskn. Í þeirri nefnd af stjórnarliðanna hálfu er eingöngu hv. þm. Pétur H. Blöndal viðstaddur umræðuna. Hér eru ekki hv. þingmenn Vilhjálmur Egilsson, formaður nefndarinnar, Kristinn H. Gunnarsson, varaformaður nefndarinnar, Sigríður Anna Þórðardóttir úr Sjálfstfl., Gunnar Birgisson úr Sjálfstfl. og Hjálmar Árnason úr Framsfl.
Herra forseti. Það er náttúrlega enginn bragur á þinghaldinu við slíkar aðstæður og ég fer þess á leit að hæstv. forseti fresti umræðunni, a.m.k. þar til hæstv. viðskrh. lætur svo lítið að vera hér viðstaddur.
Það væri líka full ástæða til að fara þess á leit og fara fram á að hæstv. forsrh. væri hér viðstaddur einmitt þessa umræðu um viðskiptasiðferðið. Hann hefur farið mikinn í allt sumar einmitt um þessi mál og ég bið um að það verði kannað hvort hann eigi þess ekki kost að koma hingað og taka þátt í umræðum um þessi mál hér á hinu háa Alþingi eins og hann hefur gert í blöðum og tímaritum og fjölmiðlum í allt sumar.
Það væri ekki fjarri lagi heldur að kanna um hagi hæstv. fjmrh. í þessu samhengi. Ég ítreka það, virðulegi forseti, að þetta verði gaumgæft og athugað en á meðan verði umræðunni frestað.
(Forseti (ÁSJ): Forseti mun athuga hvort umræddir hæstv. ráðherrar geta mætt. Það er verið að ná sambandi. Ég tek einn mann á mælendaskrá og síðan verður íhugað hvort haldið verður áfram.)