Ásta Möller (andsvar):
Virðulegur forseti. Bara stutt svar varðandi það að fá staðfestingu frá viðskrh. og fá þannig einhvern stimpil á það hvort siðareglur eru góðar eða slæmar.
Ég held að það þurfi ekki, svona í prinsippinu þarf það ekki, vegna þess að fyrirtæki sem brýtur gegn siðferðisvitund fólks dæmir sig sjálft út af markaðnum.