Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Eins og ég sagði hef ég dæmi um það. Það er úrskurður má ég segja frekar en tilmæli, í þessu efnisatriði skiptir það ekki máli, þar sem fjallað var um málefni Landssímans og dregin til baka af embættismönnum Samkeppnisstofnunar án þess að það yrði borið undir samkeppnisráð.