Hjálmar Árnason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. svörin. Ég vil ítreka það sem ég nefndi áðan að mælingar sýna að nagladekk valda verulegri mengun, bæði loftmengun og hávaðamengun og mælingar sýna jafnframt að þau er ekki jafnnauðsynleg, þannig að e.t.v. vantar sveigjanleika í reglum um notkun þeirra.
Ég bendi jafnframt á það sem hæstv. ráðherra vék að að hér hefur verið þróuð ný tækni, svokölluð harðkornadekk og önnur gerð dekkja sem Einar Einarsson hefur þróað. Ég bendi jafnframt á þá aðferð sem farin hefur verið m.a. í Noregi að hafa ólíkar reglur eftir landshlutum. En meginatriðið er að nagladekk geta falið í sér falskt öryggi og þar með þjóna þau ekki tilgangi sínum.
Í ljósi þess að nýrri tækni hefur skotið upp kollinum, þá vil ég hvetja hæstv. ráðherra til þess að beita sér fyrir því að gerð verði úttekt á því hvort ekki sé eðlilegt að auka sveigjanleikann og taka upp nýja kosti á þessu sviði.