Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Frá Hafnarfirði berast þær fréttir að yfirvöld þar í bæ bíði svars frá ríkisstjórninni hvort leyfi fáist fyrir því að rekstur grunnskólans verði boðinn út.
Fram hefur komið í fréttum að bæjaryfirvöld bera fyrir sig fjárhagsvanda sveitarfélagsins sem m.a. hafi hlotist af þessum rekstri.
Spurningin sem ég vil beina til hæstv. menntmrh. er þessi: Mun ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra beita sér fyrir því að fjárhagsvandi sveitarfélagsins verði bættur eða fjárhagsstaðan treyst þannig að sveitarfélagið geti staðið undir rekstri með sóma eða verður veitt pólitískt leyfi til þess að bjóða menntunina út þótt það hafi sýnt sig erlendis frá að slíkt sé kostnaðarsamara fyrir samfélagið þegar til langs tíma er litið og ávísun á mismunun?