Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir að lesa svona vel ræður mínar. En það stendur hvergi í þeim að ég sé þeirrar skoðunar að við eigum að fara inn í Evrópusambandið. Hann segist vera fylgjandi sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Er þingmaðurinn að gefa það í skyn að einhver þingmaður hér inni sé ekki sammála því, vilji ekki verja sjálfsákvörðunarrétt íslensku þjóðarinnar? Er þingmaðurinn að gefa það í skyn að einhver þingmaður hér inni vilji ekki að við höfum yfirráð yfir fiskimiðum okkar?
Þetta mál er því miður flóknara en svo, inn í það spilar ýmislegt annað. Við höfum gert samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og við verðum að átta okkur á því hvert verður framhald hans. Það þýðir ekkert fyrir hv. þm. Steingrím J. Sigfússon að láta eins og þetta sé ekki til, láta eins og Evrópusambandið sé ekki til og engin þróun sé þar í gangi. A.m.k. er hv. þm. andvígur því að horfast í augu við þessa hluti og þar með finnst mér hann vera á móti framtíðinni þó að ég viti það að hann stöðvi ekki lögmál tímans, sem betur fer því að Ísland hreyfist með öðrum þjóðum. Við erum í samstarfi við aðrar þjóðir. Við erum í vináttutengslum við aðrar þjóðir og við verðum að gæta að okkur í öllu þessu.
Hv. þm. fer inn í umræðuna með þeim hætti að segja: Nú er Framsfl. að svíkja þjóðina. Hann er með sömu gömlu lummurnar sem Alþb. hefur notast við alla tíð, sem hann hefur ekki getað skilið við. Í stað þess að reyna að gera upp fortíð sína og reyna að kasta fyrir borð eldgömlum og úreltum hugsjónum er hann enn að verja gömlu kommana og spurninguna um hvort þeir hafi tekið á móti peningum. Hann getur bara ekki skilið við fortíðina hvernig svo sem á því stendur.