Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Þarna kom Evrópustefna Framsfl. fram í hnotskurn. Þetta voru kraftmikil rök fyrir henni eða hitt þó heldur.
Ég er þeirrar skoðunar, herra forseti, að núverandi staða þessara mála sé ekki góð vegna þess að menn þvælast í kringum þetta eins og kettir sem fá heitan graut í skál á gólfið hjá sér. Á meðan svo er þá ríkir óvissa um á hvaða grundvelli hagsmuna Íslands verður gætt í þessum efnum í framtíðinni. Auðvitað er ekki hægt að ákveða slíkt í eitt skipti fyrir öll, það er mér ljóst. Það eru að sjálfsögðu útúrsnúningar hæstv. utanrrh., sem eru ekki svara verðir, að ég sé á móti því að skoða hlutina, á móti því að horfa upp í himininn, ég sé á móti framtíðinni o.s.frv. Slík röksemdafátækt lýsir sér í geðvonskulegum útúrsnúningum af því tagi að engu tali tekur.
Væri hæstv. utanrrh. e.t.v. nær því að vera viðræðuhæfur um þessi mál ef maður stillti hlutunum þannig upp að spyrja: Er það skynsamlegt, vegna þeirra fjölþættu hagsmuna sem við Íslendingar þurfum að sjálfsögðu að gæta, að hafa enga meginstefnu, að hafa enga leiðsögn í hver verður staða okkar í grundvallaratriðum í þessum efnum næstu 10--20 árin? Ég er að lýsa eftir því. Ef þau sjónarmið eru að koma upp, sem að hluta hafa verið hjá Alþfl., og einnig að ná fótfestu í Framsfl., að í staðinn fyrir að vera utan Evrópusambandsins sem hefur hingað til verið yfirgnæfandi meirihlutastefna allra flokka nema þá Alþfl., þá þurfum við að fá að vita það skýrt og afdráttarlaust af hálfu þeirra sem tala fyrir hönd þeirra flokka. Ég tala nú ekki um ríkisstjórnina. Þá væri staðan breytt, ekki satt? Við höfum hingað til reiknað með því að það væri ríkjandi meirihlutastefna og yrði svo um ákveðna framtíð að við mundum gæta hagsmuna okkar utan Evrópusambandsins. Ef það er að breytast þá er nauðsynlegt að það komi fram og menn hafi kjark til þess að segja hug sinn allan.