Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Þriðjudaginn 02. nóvember 1999, kl. 15:41:40 (962)

1999-11-02 15:41:40# 125. lþ. 17.5 fundur 108#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), SvH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur, 125. lþ.

[15:41]

Sverrir Hermannsson (andsvar):

Herra forseti. Ég ítreka þakkir mínar til hæstv. ráðherra fyrir andsvör hans. Að hæstv. ráðherra hafi aldrei heyrt hæstv. forsrh. tilkynna og gefa yfirlýsingu um að Evrópusambandsmálin væru ekki til umræðu hlýtur bara að vera vegna þess að hæstv. ráðherra er svo mikið erlendis að hann hefur ekki náð að heyra þetta sem ég þykist hafa margheyrt.